|
Sunnudagur, 30. maí 2010 23:13 |
|
Minnum á framhaldsaðalfund SKA mánudagskvöldið 31. mai kl. 20:00 i Íþróttahöllinni. Hvetjum fólk til að mæta.
HÉR má sjá nýjustu lög skíðafélagsins.
Stjórnin. |
|
|
Ársþing skíðasambands Íslands. |
|
Þriðjudagur, 25. maí 2010 23:34 |
Ársþing Skíðasambands Íslands fór fram 20 mai sl.
Formaður var kjörinn Páll Grétarsson. Aðrir kosnir í stjórn: Guðmundur Jakobsson, Óskar Garðarsson, Björn Gunnarsson, Árni Rúdólf Rúdólfsson, Arnar Gauti Reynisson, í varastjórn: Dagný Linda Kristjánsdóttir, Helgi Geirharðsson og Óskar Óskarsson.
|
|
Nánar...
|
|
Þriðjudagur, 25. maí 2010 23:25 |
|
Framhaldsaðalfundur SKA verður haldin í Íþróttahöllinni, á teríunni, mánudaginn 31. mai kl. 20:00. Efni fundar er ársreikningur félagsins. Hvetjum sem flesta til að mæta.
Stjórnin. |
|
Frá lokahófi 12 ára og yngri |
|
Fimmtudagur, 20. maí 2010 23:56 |
|
Á sunnudaginn 16. maí var lokahóf iðkenda Skíðafélags Akureyrar 12 ára og yngri bæði í göngu og alpagreinum. Lokahófið fór fram í Verkmenntaskólanum á Akureyri. Foreldrar komu með kökur og varð úr stærðarinnar veisluborð með kræsingum sem smökkuðust mjög vel á annars vel heppnuðu lokahófi. Síðan var verðlaunaafhending fyrir Akureyrarmót í göngu, svigi og stórsvigi auk þess sem viðurkenningar voru veittar fyrir ástundun og framfarir í flokkum 9 – 12 ára. Öll úrslit móta er að finna hér á síðu SKA undir "mót og úrslit".
Í alpagreinum voru eftirfarandi viðurkenningar veittar: * Ástundun 11-12 ára Gígja Björnsdóttir * Framfarir 11-12 ára Guðsteinn Ari Hallgrímsson * Ástundun 10 ára Katla Björg Dagbjartsdóttir * Framfarir 10 ára Helga Klemensdóttir * Ástundun 9 ára Darri Rúnarsson * Framfarir 9 ára Dagný Svala Gunnarsdóttir Í göngunni voru eftirfarandi viðurkenningar veittar: * Ástundun 11-12 ára: Hjörvar Sigurgeirsson * Framfarir 11-12 ára: Andri Snær Sævarsson * Ástundun 9-10 ára: Anna karen Pálsdóttir * Framfarir 6-10 ára: Arna Sól Sævarsdóttir Þess ber að geta að þjálfararnir vildu koma því á framfæri að mjög mjög mjótt hafi verið á muninum milli krakkanna og langflestir bæði mætt vel og sýnt miklar framfarir í vetur. Krakkarnir eru því allir eigin sigurvegarar :-) Að lokum var þjálfurunum þakkað gott starf í vetur með smá þakklætisverðlaunum.
HÉR má sjá fleiri myndir frá hófinu sem Benni tók.
|
|
Frá lokahófi 13 ára og eldri |
|
Mánudagur, 17. maí 2010 08:55 |
|
Í gær laugardag, var lokahóf fyrir iðkendur 13 ára og eldri. Þeir áttu frábæran dag og fór m.a. í Lazertac, sund og komu svo beint í grillveislu og verðlaunaafhendingu í Brekkuskóla. Fyrst voru verðlaun veitt fyrir Akureyrarmót í stórsvigi og svigi – úrslitin má einnig finna hér á síðunni undir mót og úrslit.
Stórsvig
Kolbrún Lilja Hjaltadóttir (13 – 14 ára)
- Karen Sigurbjörnsdóttir (15-16 ára)
- Tinna Dagbjartsdóttir (konur)
- Róbert Ingi Tómasson (15-16 ára)
- Jón Viðar Þorvaldsson (karlar)
Svig
- Kolbrún Lilja Hjaltadóttir (13 – 14 ára)
- Sigrún Stella Þorvaldsdóttir (15-16 ára / konur)
- Hákon Valur Dansson (15-16 ára)
- Jón Viðar Þorvaldsson (karlar)
Auk þess veittu þjálfarar viðurkenningar fyrir ástundun, framfarir og dugnað. Í aldursflokknum 13 – 14 ára var ástundunarbikar veittur Kolbrúnu Lilju Hjaltadóttur og framfarabikar fékk Auður Brynja Sölvadóttir. Hjá 15 ára og eldri fékk Karen Sigurbjörnsdóttir bæði ástundunar- og framfarabikar, Hákon Valur Dansson ástundunarbikar og Hallgrímur Páll Leifsson framfarabikar. Síðast en ekki síst var veittur dugnaðarbikar og hann fékk Eyþór Arnarson J
Að lokum var þjálfurunum, Markusi, Jóni Viðari og Kára þakkað gott starf í vetur og þeir leystir út í sumarið með þakklætisgrip frá SKA. |
|
Þriðjudagur, 11. maí 2010 22:08 |
Aðalfundur SKA var haldinn mánudaginn 10. maí. Fundurinn var sóttur af um 40 félagsmönnum auk stjórnarmanna. Á aðalfundi fóru fram hefðbundin aðalfundarstörf. Borin var upp tillaga að formanni og stjórn SKA. Nýr formaður er Hildigunnur Svavarsdóttir og auk hennar sitja í stjórn Ingólfur Gíslason, Baldvin Stefánsson og Gunnar Reynisson (þeir voru kjörnir í stjórn til tveggja ára á aðalfundi 2009). Nýir í stjórn eru Guðríður Jónasdóttir, Eyþór Ólafur Bergmannsson og Erlingur Guðmundsson. Mörg spennandi verkaefni bíða nýrrar stjórnar ! Auk stjórnar var kosið um fólk í alpagreinanefnd og skíðagöngunefnd samkvæmt lögum félagsins. Tillaga stjórnar um þær nefndir voru samþykktar. Upplýsingar um stjórn og nefndir félagsins verða settar inn á vefsíðu SKA fljótlega.
Vegna ófyrirsjáanlegra orsaka var ekki hægt að leggja fram reikninga félagsins fyrir síðasta starfsár og verður því boðað til framhaldsaðalfundar mánudaginn 31. maí. Nánari auglýsing um þann fund kemur síðar.
Stjórnin
Meðf. má sjá myndir sem Hermann Sigtryggsson tók á fundinum.
|
|
Nánar...
|
|
Mánudagur, 10. maí 2010 10:23 |
|
Skíðaþing verður haldið 20. mai 2010 í Reykjavík. |
|
Munið aðalfundinn í kvöld. |
|
Mánudagur, 10. maí 2010 10:20 |
|
Minnum á Aðalfund Skíðafélagsins í kvöld mánudaginn 10. mai kl. 20 í Íþróttahöllinni e.h.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin. |
|
Mánudagur, 03. maí 2010 17:19 |
Hér má sjá ÚRSLIT úr Fossavatnsgöngunni sem fram fór á Ísafirði um liðna helgi. Á myndinni er Andri Steindórsson nýkomin í mark í 50km göngu en hann lenti í 5. sæti. |
|
Akureyrarmót 13 ára og eldri |
|
Sunnudagur, 02. maí 2010 23:24 |
|
Akureyrarmót í stórsvigi var haldið föstudaginn 30. apríl. Akureyrarmeistarar urðu:
Kolbrún Lilja Hjaltadóttir í 13-14 ára, Karen Sigurbjörnsdóttir í 15-16 ára, Róbert Ingi Tómasson 15-16 ára, Tinna Dagbjartsdóttir í kvennafl. og Jón Viðar Þorvaldsson í karlaflokki. Nánari úrslit undir mót og úrslit hér til vinstri. |
|
Lokahóf 12 ára og yngri 16. mai. |
|
Sunnudagur, 02. maí 2010 23:08 |
|
Sunnudaginn 16 maí kl 15:00 verður lokahóf yngri barna bæði í alpagreinum og göngu í Verkmenntaskólanum á Akureyri. Við ætlum að hafa sama brag á og síðasta ár og fá foreldra til að baka eina köku fyrir hvert barn. Við hjá barna og unglinganefnd ætlum að hringja í foreldra í næstu viku. Þannig að endilega byrjið að hugsa hvað þið viljið baka. Hlökkum til að sjá ykkur öll Barna og unglinganefnd
|
|
|
|