|
Fimmtudagur, 26. ágúst 2010 13:23 |
|
Haustæfingar að hefjast
Vadim Gusev og Veroniku Lagun þjálfarar í skíðagöngu hafa framlengt samning sinn við SKA. Þau eru bæði menntaðir íþróttakennarar, Vadim með skíðagöngu sem sérgrein og Veronika skíðaskotfimi. Þá hafa þau bæði reynslu úr heimsmeistaramótum auk þess sem Vadim tók þátt í Ólympíuleikunum 2006.
Auk þjálfunar hjá SKA starfar Veronika sem íþróttakennari við Síðuskóla og Vadim vinnur hjá Slippnum Akureyri.
Vadim og Veronika eru búin að vera með með æfingar í gangi í allt sumar og hafa gert það í sjálfboðavinnu. Núna í september verður svo byrjað á formlegum haustæfingum. Vadim verður með æfingar fyrir 13 ára og eldri og Veronika verður með sameiginlegar haustæfingar alpa- og gönguiðkenda 12 ára og yngri. Æfingatímar verða auglýstir á næstunni en fyrsta æfingin hjá 12 ára og yngri verður sunnudaginn 5. september klukkan 11:00 í Kjarnaskógi |
|
|
Fimmtudagur, 26. ágúst 2010 11:16 |
|
Skíðadeild Breiðabliks stendur fyrir Kópaþreki fyrstu helgina í október. Kópaþrek er fyrir káta skíðakrakka sem æfa alpagreinar og göngu og eru 13. til 16. ára (1994-1997) Dagskráin verður send út um leið og hún verður klár, en búast má við einhverjum áherslubreytingum þar sem nýjir aðilar koma nú að æfingunum. Keppst er að því að gera helgina sem skemmtilegasta fyrir þátttakendurna og vonum við að allir hafi gaman af. (Frétt tekin af ski.is) |
|
Þrekæfing 13 ára og eldri |
|
Þriðjudagur, 17. ágúst 2010 21:33 |
|
Fyrsta alpagreina-úti-þrekæfing haustsins verður á morgun miðvikudag 18. ágúst kl. 17:00 Mæting við þrekhöllina þar sem Jón Viðar og Rúnar Ingi taka á móti ykkur og fara yfir planið næstu vikurnar. Allir að mæta og taka vel á því.
Nefndin. |
|
Laugardagur, 31. júlí 2010 15:46 |
Nýr skíðamaður birtist á Akureyri kl. 09.17 í morgun laugardaginn 31. júlí er þeim Önnu Rósu og Jóni Viðari fæddist sonur. Hann fæddist 15,5 merkur og 55 sm og er eldsprækur og fjall myndarlegur eins og sjá má á myndinni.
Til hamingju stoltir foreldrar! |
|
Kirkjutröppuhlaup Andrésar andar |
|
Mánudagur, 26. júlí 2010 21:24 |
|
Andrésarandar nefndin hefur tekið að sér framkvæmd kirkjutröppuhlaupsins í samstarfi við framkvæmdarstjórn Einnar með öllu en í forsvari þar er Margrét Blöndal. Hlaupið er fyrir alla og hvetjum við SKA félaga og alla aðra til að koma og taka þátt.
Skráning á staðnum, tímataka, viðurkenningarskjöl og verðlaun fyrir besta tímann, flottasta búninginn og flottustu tilþrifin. Kynnir: Sigurbjörn Árni Arngrímsson. |
|
Sunnudagur, 11. júlí 2010 20:14 |
|
Valinn hefur verið hópur iðkenda til þátttöku í æfingabúðum skíðasambandsins sem verða í Noregi í ágúst og fram í september.
Valdir voru 8 bestu strákar og stelpur í hverri grein samkvæmt FIS punktum í svigi,stórsvigi og risasvigi auk tveggja bestu í 13-14 ára flokki frá fyrra ári. Björgvin Björgvinsson verður í World Cup liði SKI.Eftirtaldir aðilar voru valdir:
Stefán Jón Sigurgeirsson Húsavík, Sigurgeir Halldórsson SKA, Sturla Snær Sorrason Ármanni, Jón Gauti Ástvaldsson Víking, Brynjar Jökull Guðmundsson Víking, Magnús Finnsson SKA, Róbert Ingi Tómasson SKA, Eyþór Arnarson SKA, Hjörleifur Einarsson Dalvík, Einar Kristinn Kristgeirsson IR, Markús Már Jóhannsson BBL, Jakob Helgi Bjarnason Dalvík, Iris Guðmundsdóttir SKA, Katrín Kristjánsdóttir SKA, María Guðmundsdóttir SKA, Fanney Guðmundsdóttir Ármanni, Tinna Dagbjartsdóttir SKA, Erla Ásgeirsdóttir BBL, Freydís Halla Einarsdóttir Ármanni, Erla Guðný Helgadóttir KR, Elín Jónsdóttir Ísafirði, Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir Ármanni og Thelma Rut Jóhannsdóttir Ísafirði.
Óskum við okkar krökkum til hamingju og vonum að þeim gangi vel í æfingabúðunum. Við fylgjumst að sjálfsögðu með þeim og bíðum og sjáum svo hverjir verða áfram í hópnum eftir æfingaferðina í ágúst/sept.
|
|
Nánar...
|
|
Þjálfarabúðir fyrir fagfólk í þjálfun |
|
Laugardagur, 10. júlí 2010 17:35 |
|
Dagana 23.-25. september stendur Keilir fyrir 3ja daga þjálfarabúðum fyrir fagfólk í þjálfun og heilsurækt.
Þjálfarabúðirnar skiptast niður í þrjú mismunandi námskeið.Leiðbeinendur verða þrír stjörnuþjálfarar frá Bandaríkjunum og kennir hver þeirra í einn dag.Öll námskeiðin fara fram hjá Keili að Ásbrú klukkan 09.00-16.00.Nákvæm útlistun á hverju námskeiði verður kynnt síðar en hér má finna upplýsingar um efni og leiðbeinendur.
|
|
Nánar...
|
|
Nýr Landsliðsþjálfari ráðinn. |
|
Sunnudagur, 04. júlí 2010 01:34 |
|
Ånen Andre Giverhaug hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari fyrir alpagreinar. Ånen er norskur og hefur 13 ára reynslu í skíðaþjálfun, einnig hefur hann víðtæka þjálfaramenntun t.a.m. 3. stig norska skíðasambandsins Ånen er íslenskum skíðamönnum kunnur þar sem hann var þjálfari hjá skíðadeild Víkings sl tvö ár. Ånen hóf störf hjá Skíðasambandi Íslands 1. júlí.
(frétt tekin af ski.is) |
|
Opin landsliðsæfing í skíðagöngu um Verslunarmannahelgina. |
|
Fimmtudagur, 01. júlí 2010 11:11 |
|
Haldin verður opin landsliðsæfing á vegum skíðagöngunefndar SKÍ dagana 28. júlí – 4. ágúst 2010 að Steinsstöðum í Skagafirði. Mæting er á miðvikudegi 28. júlí og heilir æfingadagar verða frá fimmtudegi til þriðjudags, brottför á þriðjudagskvöldi eða á miðvikudegi 4 ágúst.
Einnig verður boðið uppá fræðslu í formi fyrirlestra og/eða kynninga á samæfingunni. Samæfingin verður fjölskylduvæn og opin ÖLLUM (foreldrar og börn og gamalreyndar Vasakempur) og er fólki frjálst að mæta þá daga sem því hentar (þarf ekki að vera allan tímann), en á áður upptöldum dögum mun verða skipulögð dagskrá á vegum skíðagöngunefndarinnar ásamt Linusi Davidsyni landsliðsþjálfara.
|
|
Nánar...
|
|
Góð grein um þjálfun íþróttamanna |
|
Mánudagur, 07. júní 2010 20:06 |
|
Hvernig verður sterkur enn sterkari? Greinina má sjá HÉR |
|
Íslandsbanki áfram bakhjarl SKA. |
|
Mánudagur, 07. júní 2010 19:52 |
|
SKA og Íslandsbanki hafa endurnýjað samstarfssamning til tveggja ára en Íslandsbanki er mikilvægur bakhjarl SKA. Meginmarkmið samningsins er að styðja við mikilvægt íþrótta – og uppeldisstarf sem unnið er á vegum SKA. Samningurinn við Íslandsbanka er skíðafélaginu mikilvægur og erum við mjög þakklát fyrir þennan góða stuðning frá þeim.
Stjórnin. |
|
|
|