Útsala hjá Tröllasport
Sunnudagur, 05. febrúar 2012 00:00

Þá ætlar Tröllasport að fara af stað með smá útsölu.

25% afsláttur af öllum SLYTECH vörum.
- Bakbrynjur
- Púðavesti
- Legghlífar
- Handahlífar

25% afsláttur af öllum BOOSTER ströppum fyrir skíðaklossa.

Nánar...
 
Fjórir iðkendur SKA valdir á HM unglinga
Föstudagur, 03. febrúar 2012 20:40

SKÍ hefur valið 9 einstaklinga til að taka þátt í HM unglinga í Roccaraso á Ítalíu sem fram fer 29. febrúar til 9. mars. Fjórir þeirra eru iðkendur í SKA, það eru þau María Guðmundsdóttir, Magnús Finnsson, Einar Kristinn Kristgeirsson og Arnar Geir Ísaksson. Óskum við þeim til hamingju með það og óskum við þeim einnig góðs gengis. Aðrir sem voru valdir eru þau Erla Ásgeirsdóttir Breiðablik, Freydís Halla Einarsdóttir SKRR, Helga María Vilhjálmsdóttir SKRR, Jakob Helgi Bjarnason Dalvík og Sturla Snær Snorrason SKRR.

 
Akureyrarmót í skíðagöngu
Sunnudagur, 29. janúar 2012 22:27
Akureyrarmót í skíðagöngu með hefðbundinni aðferð fór fram í Hlíðarfjalli á laugardaginn og með frjálsri aðferð á sunnudag. Mótin gengu mjög vel og eru úrslit komin inn undir "Mót og úrslit"
 
Skíðagöngunámskeið var vel sótt
Sunnudagur, 29. janúar 2012 09:49
Síðasta fimmtudag fór fram fyrsta skíðagöngunámskeið SKA og TVG í vetur og mættu um 60 manns til að fá leiðsögn. Vert er að minna á að næsta námskeið verður fimmtudaginn 9.febrúar kl 18.
 
Skíðagöngunámskeið var vel sótt
Sunnudagur, 29. janúar 2012 09:49
Síðasta fimmtudag fór fram fyrsta skíðagöngunámskeið SKA og TVG í vetur og mættu um 60 manns til að fá leiðsögn. Vert er að minna á að næsta námskeið verður fimmtudaginn 9.febrúar kl 18.
 
Úrslit og myndir komnar inn á síðuna
Laugardagur, 28. janúar 2012 16:57
Nú eru komin inn úrslit frá deginum í dag. Farið er inn í Mót og úrslit hér á síðunni til vinstri. Einnig eru komnar inn myndir sem teknar voru í fjallinu í dag og við verðlaunaafhendinguna, þær eru að finna inni á Myndasíðunni.
 
Kolbrún Lilja og Arnar Geir sigruðu í dag á Akureyrarmótinu
Laugardagur, 28. janúar 2012 13:01
Í dag var haldið Akureyrarmót í svigi í flokki 15 ára og eldri. Hjá stelpunum var Kolbrún Lilja Hjaltadóttir í fyrsta sæti, Elín Jónsdóttir önnur en aðeins voru tvö brot á milli þeirra. Í 3. sæti var Matthildur Rún Káradóttir. Hjá strákunum var Arnar Geir Ísaksson nr. 1, Einar Kristinn Kristgeirsson nr. 2 og Magnús Finnsson nr. 3. Verðlaun verða þó veitt fyrir hvern flokk fyrir sig (15-16 ára og 17-19 ára). Nánari úrslit má finna hér.
 
Tepe- og Akureyrarmót í Hlíðarfjalli í dag
Laugardagur, 28. janúar 2012 10:24
Akkúrat núna fer fram Akureyrarmót í svigi í flokki 15 ára og eldri. Klukkan 11 hefst svo TePe mót í stórsvigi í flokki 9-10 ára, 11-12 ára og 13-14 ára. Hægt er að fylgjast með tímatökunni á Live-timing.
 
Fréttir af Sigurgeiri
Föstudagur, 27. janúar 2012 17:07

Sigurgeir_Halldrsson Sigurgeir Halldórsson keppti í svigi í Austurríki á mánudaginn var og varð í 24. sæti. 83 keppendur voru skráðir og 60 náðu að klára. Á þriðjudaginn keppti hann svo í stórsvigi en náði því miður ekki að klára fyrri ferðina.

 
Katrín stóð sig vel í Svíþjóð um síðustu helgi
Föstudagur, 27. janúar 2012 17:03

kata Katrín Kristjánsdóttir keppti á tveimur stórsvigsmótum í Svíþjóð um síðustu helgi og stóð sig mjög vel. Fyrri daginn endaði hún í 10. sæti af þeim 46. stúlkum sem luku keppni á laugardag Katrín bætti FISpunkta stöðu sína. Seinni daginn náði hún hins vegar ekki að klára fyrri ferð.

 
Fréttir af Katrínu, Maríu og Sigurgeiri
Föstudagur, 27. janúar 2012 16:51

Þær Katrín Kristjánsdóttir og María Guðmundsdóttir eru skráðar til keppni á sex Evrópubikarmótum næstu vikuna.
Í gær og í dag kepptu þær í svigi í Melchsee Frutt í Sviss, þaðan fara þær til Frakklands og keppa 30. og 31. janúar í Courchevel á tveimur stórsvigsmótum og enda svo á að fara til Ítalíu og keppa í San Candido í svigi.

Sigurgeir Halldórsson er í Austurríki við æfingar og keppni.

 
« FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta »

Hannað af Teikn á lofti | Vefstjóri